Nokia N86 8MP - Öryggi tenginga

background image

Öryggi tenginga

Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk er

gagnasendingin á milli tækisins og netgáttarinnar eða

miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi gagnasendingar milli

gáttarinnar og efnisþjónsins (þar sem gögnin eru

geymd). Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna

milli gáttarinnar og efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna

þjónustu, líkt og bankaþjónustu. Látið er vita ef

uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið

inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð. Þjónustuveitan

gefur nánari upplýsingar.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi

verulega úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og

uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo

að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein

og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,

sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi

fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn

„Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið

gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr

skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og

að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.