Nokia N86 8MP - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera

sprengihætta. Farðu eftir leiðbeiningum sem gilda

hverju sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið

sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel

dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum,

svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða

skal takmarkanir í eldsneytisgeymslum, svæðum þar

sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram,

efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja.

Svæði þar sem kann að vera sprengihætta eru oftast

auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar

sem ráð gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í

farrýmum skipa, í efnageymslum eða við efnaflutninga

og þar sem efni eða agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft

gæti verið í lofti. Þú ættir að leita upplýsinga hjá

framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt og

própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota

þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.