Nokia N86 8MP - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki,

þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar

aðgerðir. Ef tækið styður símtöl á internetinu

(netsímtöl) skaltu bæði kveikja á farsímanum og á

netsímtölum. Tækið getur reynt að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu

netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja

tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta

eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða

bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:

1.

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal

hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú

gætir einnig þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir

tækinu þínu:

Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í

tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða

flugsniði í virkt snið.

2.

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa

skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3.

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi

svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4.

Styddu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa

tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki

má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

162

ru

- og

öry

gg

isu

pplý

si

ng

ar