Nokia N86 8MP - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og

hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta

tæki er ætlað til notkunar með BL-5K rafhlöðu.

Hugsanlega verða hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá

Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar

þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum:

AC-10. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi

eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd

með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð

sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar

tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal

skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem

samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða

rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef

rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann

að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja

það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef

rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar

til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er

að hringja.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og

aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í

notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi

við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma

157

ru

- og

öry

gg

isu

pplý

si

ng

ar

background image

hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og

smátt ef hún er ekki í notkun.
Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að

rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C

(frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr

endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri

rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum

hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir

slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma

eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna

á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á

rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar

vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup

milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni

eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær

geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við

staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim

með heimilisúrgangi.
Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja,

gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu

forðast að hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist

það skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við

rafhlöðuna með vatni eða leita læknisaðstoðar.
Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja

hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa

rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.

Rafhlöður geta sprungið ef þær skemmast.
Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem

hún er ætluð. Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för

með sér eld- eða sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú

missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart

yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi skemmst, skaltu

fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú

heldur áfram að nota hana. Aldrei skal nota skemmt

hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar

sem lítil börn ná ekki til.