Nokia N86 8MP - Endurvinnsla

background image

Endurvinnsla

Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og

umbúðum á viðeigandi sorp- og endurvinnslustöð.

Þannig geturðu dregið úr óflokkaðri sorplosun og

stuðlað að endurvinnslu. Skoðaðu upplýsingar um

umhverfisatriði og endurvinnslu á Nokia-vörum á

www.nokia.com/werecycle eða www.nokia.mobi/

werecycle.

Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á

vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða

umbúðunum táknar að fara verður með allan

rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og

rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma

vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan

Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með

heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar um umhverfismál

er að finna í Eco-yfirlýsingum fyrir vörur á

www.nokia.com/environment.