Nokia N86 8MP - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem

fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar

hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns

vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra

rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja

rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en

rafhlaðan er sett í það aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum

stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og

rafrænir hlutar þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á köldum eða heitum stað.

Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,

skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur

raki myndast innan í því og hann getur skemmt

rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint

er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða

hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri

rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga

eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið. Aðeins

skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að

hreinsa yfirborð tækisins.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest

hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að

þeir vinni rétt.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum

eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet,

breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt

tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um

senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d.

tengiliðum og dagbókaratriðum.

159

ru

- og

öry

gg

isu

pplý

si

ng

ar

background image

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja

þannig hámarksafköst með því að slökkva á tækinu

og fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,

hleðslutækið eða annan aukabúnað.