
Um Bluetooth
Bluetooth-tækni í tækinu virkjar þráðlausar tengingar
á milli tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10
metra (33 feta) fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota
Bluetooth-tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir,
texta, nafnspjöld, minnismiða í dagbókum og til að
tengjast við önnur tæki sem nota Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti
með útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það
er tengt við ekki að vera staðsett beint á móti hvort
öðru. Tækin tvö þurfa einungis að vera í innan við 10
metra fjarlægð frá hvort öðru. Truflanir geta þó orðið
51
Te
ngimöguleikar

á tengingunni vegna veggja eða annarra
rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka
í einu. Til dæmis er hægt að flytja skrár úr öðru
samhæfu tæki þó að það sé tengt við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0
+ EDR sem styður eftirfarandi snið: Dial-Up Networking
(DUN), Object Push Profile (OPP), File Transfer Profile
(FTP), Hands Free Profile (HFP), Headset Profile (HSP),
Basic Imaging Profile (BIP), Remote SIM Access Profile
(SimAP), Device Identification Profile (DI), Phonebook
Access Profile (PBAP), Generic Audio/Video Distribution
Profile (GAVDP), Audio/Video Remote Control Profile
(AVRCP), Advanced Audio Distribution Profile (A2DP). Til
að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja
Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal
upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um
samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu
símans og draga úr endingu hennar.