Nokia N86 8MP - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Tenging

>

Bluetooth

.

Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið lykilorð (1-16

tölustafir) og biðja notanda hins tækisins um að nota

sama lykilorð. Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru

með fast lykilorð. Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar

tækin eru tengd í fyrsta skipti. Hægt er að heimila

tenginguna að pöruninni lokinni. Með því að para

saman tæki og heimila tenginguna verður fljótlegra að

koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja

tenginguna á milli paraðra tækja í hvert skipti sem

henni er komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16

tölustafir.
Í ytri SIM-stillingu er hægt að nota SIM-kort tækisins

með samhæfum aukabúnaði.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er

aðeins hægt að hringja og svara símtölum með

samhæfum aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d.

bílbúnaði).
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar

stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað

í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-

stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn

lykilnúmerið til að opna það.

1.

Veldu

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tækið byrjar

þá að leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu. Ef gögn

hafa áður verið send um Bluetooth-tengingu birtist

listi með fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri

Bluetooth-tækjum innan svæðisins með því að velja

Fleiri tæki

.

2.

Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn

lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið.

3.

Til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli tækisins

þíns og annars tækis skaltu velja

. Til að staðfesta

tenginguna handvirkt í hvert sinn sem tækin reyna

53

Te

ngimöguleikar

background image

að tengjast skaltu velja

Nei

. Eftir pörunina er tækið

vistað á síðu paraðra tækja.

Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu

Valkostir

>

Gefa stuttnefni

. Gælunafnið birtist

eingöngu í þínu tæki.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo

Valkostir

>

Eyða

. Til að eyða öllum pörunum velurðu

Valkostir

>

Eyða öllum

. Ef tækið er tengt við annað tæki og

pöruninni við það er eytt, er pörunin fjarlægð strax og

tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt

tæki velurðu

Stilla sem heimilað

. Hægt er að koma á

tengingu á milli tækisins þíns og hins tækisins án

vitneskju þinnar. Ekki þarf að samþykkja eða heimila

tenginguna sérstaklega. Notaðu þessa stöðu eingöngu

fyrir eigin tæki, líkt og samhæf höfuðtól eða tölvu, eða

tæki þeirra sem þú þekkir og treystir. Ef þú vilt

samþykkja tengingarbeiðni frá hinu tækinu í hvert

skipti velurðu

Stilla sem óheimilað

.

Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað, t.d.

handfrjálsan Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að

para tækið við aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar

leiðbeiningar eru í notendahandbók aukabúnaðarins.

Kveiktu á hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við

hann. Ákveðnar gerðir hljóðaukabúnaðar tengjast

sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist ekki skaltu opna

flipann fyrir pöruð tæki, velja aukabúnaðinn og

Valkostir

>

Tengjast við hljóðtæki

.