Nokia N86 8MP - Við þráðlaus staðarnet

background image

Við þráðlaus staðarnet

Til að nota þráðlaus staðarnet þarf að búa til

netaðgangsstað. Notaðu aðgangsstaðinn fyrir

aðgerðir sem krefjast tengingar við internetið.

Tengingu við þráðlaust staðarnet er komið á þegar þú

býrð til gagnatengingu með aðgangsstað að þráðlausu

neti. Þegar þú lokar gagnatengingunni er þráðlausu

staðarnetstengingunni einnig lokað. Einnig er hægt að

loka tengingunni handvirkt.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali

stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er

hægt að tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust

staðarnet í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað

sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet þó svo að ótengda

sniðið sé í notkun. Mundu að fara að öllum viðeigandi

49

Te

ngimöguleikar

background image

öryggisreglum þegar þú kemur á og notar þráðlausa

staðarnetstengingu.
Ef þú færir tækið til innan þráðlauss staðarnets og úr

færi við aðgangsstað þess finnur reikiaðgerðin

sjálfkrafa nýjan aðgangstað fyrir tækið þitt innan sama

nets. Á meðan þú ert í færi við aðgangsstaði sem

tilheyra sama neti getur tækið þitt haldið tengingunni

við það net.

Ábending: Til að kanna MAC-vistfang (media

access control) sem ber kennsl á tækið þitt, t.d.

til að stilla MAC-vistfang tækisins þíns á beini fyrir

þráðlaust staðarnet, skaltu slá inn *#62209526#

á heimaskjánum. MAC-vistfangið birtist.