
Hringitónar, myndir og texti
fyrir tengiliði
Hægt er að tilgreina hringitón fyrir tengilið eða hóp,
og mynd og texta fyrir tengilið. Þegar tengiliðurinn
hringir í þig spilar tækið tiltekna hringitóninn og birtir
textann eða myndina (ef tækið ber kennsl á
símanúmerið sem er sent með hringingunni).
Til að setja inn hringitón fyrir tengilið eða tengiliðahóp
velurðu tengiliðinn eða hópinn og
Valkostir
>
Hringitónn
, og síðan hringitón.
Til að setja inn hringitexta fyrir tengilið velurðu
tengiliðinn, og síðan
Valkostir
>
Bæta við texta
símtala
. Sláðu inn textann og veldu
Í lagi
.
Til að setja inn mynd fyrir tengilið, sem vistuð er í minni
tækisins, velurðu tengiliðinn,
Valkostir
>
Bæta við
mynd
, og mynd úr Myndir.
Til að hætta að nota hringitóninn skaltu velja
Sjálfvalinn tónn
af hringitónalistanum.
Til að skoða, breyta eða eyða myndinni velurðu
tengiliðinn,
Valkostir
>
Mynd
, og tiltekinn valkost.