
Safnsíður
Skráasöfn eru opnaðar með því að velja
Valmynd
>
Tónlist
>
Podcasting
og
Skráasöfn
.
Safnsíður hjálpa þér að finna nýjustu netvarpsþættina
sem þú getur gerst áskrifandi að.
Innihald skráasafna breytist. Veldu viðeigandi
skráasafn til að uppfæra það (sérþjónusta). Litur
skráasafnsins breytist þegar uppfærslu er lokið.
Skráasöfn geta innihaldið netvörp sem eru flokkuð eftir
vinsældum eða eftir gerð.
Til að opna þemamöppu skaltu velja hana og svo . Listi
yfir netvörp birtist.
Til að gerast áskrifandi að netvarpi velurðu titilinn og
síðan
Gerast áskrifandi
. Þegar þú hefur gerst
áskrifandi að netvarpsþáttum getur þú hlaðið niður,
sýslað með og spilað þá í netvarpsvalmyndinni.
Til að bæta við nýju skráasafni eða möppu velurðu
Valkostir
>
Ný
>
Safnsíða
eða
Mappa
. Sláðu inn titil
og veffang OPML-skráar (outline processor markup
language) og veldu svo
Lokið
.
Til að breyta möppu, veftengli eða safnsíðu á vefnum
velurðu
Valkostir
>
Breyta
.
Til að flytja inn OPML-skrá sem er vistuð í tækinu þínu
velurðu
Valkostir
>
Setja inn OPML-skrá
. Veldu
staðsetningu skrárinnar og settu hana inn.
Til að senda skráasafnsmöppu í
margmiðlunarskilaboðum eða um Bluetooth velurðu
möppuna og svo
Valkostir
>
Senda
.
Þegar þú færð skilaboð með OPML-skrá um Bluetooth
opnarðu skrána til að vista hana í möppunni Móttekið
í skráasöfnum. Opnaðu möppuna til að gerast
áskrifandi að einhverjum tenglanna og bæta þeim við
netvörpin þín.
67
Tónli
st