Nokia N86 8MP - Netvarpsstillingar

background image

Netvarpsstillingar

Til að opna Nokia Podcasting velurðu

Valmynd

>

Tónlist

>

Podcasting

.

Veldu tengi- og niðurhalsstillingar áður en þú notar

Nokia Podcasting.
Mælt er með þráðlausri staðarnetstengingu. Hafðu

samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um

skilmála og gjaldskrá áður en aðrar tengiaðferðir eru

notaðar. Til dæmis getur fastagjald leyft stórar

gagnasendingar fyrir eitt mánaðargjald.

Tengistillingar

Tengistillingum er breytt með því að velja

Valkostir

>

Stillingar

>

Tenging

og úr eftirfarandi:

Sjálfgef. aðgangsstaður

— Veldu aðgangsstaðinn

til að tilgreina tengingu við internetið.

Slóð leitarþjónustu

— Tilgreindu hvaða

leitarþjónustuveffang á að nota í leit.

Stillingar fyrir niðurhal

Stillingum fyrir niðurhal er breytt með því að velja

Valkostir

>

Stillingar

>

Niðurhal

og úr eftirfarandi:

Vista á

— Tilgreindu staðinn þar sem netvörp eru

vistuð.

Uppfærslutími

— Tilgreindu hversu oft netvörp

eru uppfærð.

Næsti uppfærsludagur

— Tilgreindu dagsetningu

næstu sjálfvirku uppfærslu.

Næsti uppfærslutími

— Til að tilgreina tíma fyrir

næstu sjálfvirku uppfærslu.
Sjálfvirkar uppfærslur eiga sér bara stað ef ákveðinn

sjálfgefinn aðgangsstaður er valinn og Nokia

Podcasting er í gangi. Ef Nokia Podcasting er ekki í

gangi eru sjálfvirkar uppfærslur ekki virkar.

Takmörk niðurhals (%)

— Til að tilgreina hlutfall

minnis sem er ætlað fyrir niðurhal á netvörpum.

Ef efni fer yfir takmörk

— Tilgreindu hvað á að

gera ef niðurhalið fer yfir hámarkið.

Það að stilla forritið á að sækja podcast sjálfkrafa getur

falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi

þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld

fást hjá þjónustuveitum.
Til að setja aftur upp sjálfgefnar stillingar velurðu

Valkostir

>

Upprunalegar stillingar

á

stillingaskjánum.