Búa til dagbókaratriði
1.
Til að bæta nýju atriði inn í dagbókina skaltu velja
dagsetninguna og velja síðan
Valkostir
>
Nýtt
atriði
og úr eftirfarandi:
●
Fundur
— Bæta við áminningu um fundinn.
●
Fundarboð
— Búa til og senda nýtt fundarboð.
Þú þarft að hafa pósthólf til að geta sent
fundarboð.
●
Minnisatriði
— Skrifa almennan minnismiða
um daginn.
●
Afmæli
— Bæta við áminningu um afmæli og
aðra merkisdaga (færslurnar eru endurteknar á
hverju ári).
●
Verkefni
— Bæta við áminningu um verkefni
sem þarf að ljúka fyrir tiltekinn dag.
2.
Hægt er að bæta við lýsingu á færslu með því að
velja
Valkostir
>
Bæta við lýsingu
.
3.
Veldu
Lokið
til að vista atriðið.
Ábending: Ýttu á takka (0-9) í daga-, viku eða
mánaðarskjá dagbókarinnar. Fundaratriði
opnast og stafirnir sem þú hefur slegið inn
birtast í efnisreitnum. Í verkefnum opnast
verkefnafærsla.
Þegar dagbókartónn heyrist velurðu
Hljóð af
til að
slökkva á honum.
Slökkt er á dagbókartóni með því að velja
Stöðva
.
Til að stilla á blund skaltu velja
Blunda
.
Til að tilgreina eftir hve langan tíma dagbókartónninn
heyrist aftur þegar stillt er á blund velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Tími blunds
.