
Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni.
Mögulega er ekki þörf á að hlaða rafhlöðuna fyrirfram.
Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera
eftirfarandi.
Venjuleg hleðsla
1.
Stingdu hleðslutækinu í samband
í innstungu.
2.
Tengdu hleðslutækið við tækið.
Stöðuljósið við hlið USB-tengisins
logar þegar rafhlaðan er í hleðslu.
3.
Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er
fullhlaðin skaltu fyrst taka
hleðslutækið úr sambandi við
tækið og síðan úr innstungunni.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í
tiltekinn tíma og þú getur notað
tækið á meðan það er í hleðslu. Ef
rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á
skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Ábending: Taka skal hleðslutækið úr sambandi
við rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í
notkun. Hleðslutæki sem er í sambandi við
innstungu eyðir rafmagni þótt það sé ekki tengt
við tækið.
USB-hleðsla
Hægt er að nota USB-hleðslu ef rafmagnsinnstunga er
ekki til staðar. Með USB-hleðslu er einnig hægt að flytja
gögn á meðan tækið er hlaðið.
1.
Tengja samhæft USB-tæki við tækið með samhæfri
USB-snúru.
Skilvirkni USB-hleðslu er afar breytileg. Í sumum
tilvikum getur tekið mjög langan tíma þar til hleðsla
hefst og hægt er að taka tækið í notkun.
2.
Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja úr USB-
stillingum á skjá tækisins.
Tækið kann að hitna við líkt og myndsímtöl og
háhraðagagnatengingar notkun í lengri tíma. Það er í
flestum tilvikum eðlilegt. Ef þú telur tækið ekki vinna
rétt skaltu fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila.