Nokia N86 8MP - Snið án tengingar

background image

Snið án tengingar

Ræstu ótengda sniðið með því að ýta í stutta stund á

rofann og velja

Ótengdur

.

Með sniðinu án tengingar er hægt að nota tækið án

þess að tengjast við þráðlausa símkerfið. Þegar

ótengda sniðið er notað er slökkt á tengingunni við

þráðlausa símkerfið og það gefið til kynna með í

svæði sendistyrksvísisins. Allar útvarpsbylgjur (RF) sem

tækið sendir og fær frá farsímakerfinu eru stöðvaðar.

Ef þú reynir að senda skilaboð um farsímakerfið er

þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru send

síðar.
Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að nota tækið án

SIM-korts.
Ef SIM-kortið er ekki á sínum stað opnast tækið í

ótengda sniðinu.

Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að

hringja, svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem

þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera

hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í

tækið. Eigi að hringja verður fyrst að virkja

símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu

hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið ótengda sniðið geturðu áfram

notað þráðlaust staðarnet, t.d. til þess að lesa

tölvupóst eða vafra á internetinu. Einnig er hægt að

nota Bluetooth-tengingu í ótengda sniðinu. Mundu að

fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú

kemur á og notar þráðlausa staðarnetstengingu eða

Bluetooth.
Til að skipta yfir í annað snið á fljótlegan hátt skaltu ýta

á rofann og velja annað snið. Þá verða þráðlaus

samskipti aftur möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir

hendi).