Nokia N86 8MP - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

og

Almennar

>

Öryggi

>

Vottorðastjórnun

.

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau

notuð til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir

heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Flettu til

hægri til að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann

er fyrir hendi.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka eða

öðru vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna

aðgerða sem fela í sér sendingu trúnaðarupplýsinga.

Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna á

vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja

áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu

og settur upp.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi

verulega úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og

uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo

að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein

og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,

sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi

fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn

„Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið

gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal

athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.

Skoða upplýsingar um vottorð —kanna

áreiðanleika

Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar

búið er að kanna undirskrift og gildistíma

miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða

ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta

að því og velja

Valkostir

>

Um vottorð

. Gildi

vottorðsins er kannað og einhver af eftirfarandi

athugasemdum getur birst:

Vottorði ekki treyst

— Þú hefur ekki valið að láta

neitt forrit nota vottorðið.

Vottorð útrunnið

— Gildistími vottorðsins er

liðinn.

141

Stillin

ga

r

background image

Vottorð ekki enn gilt

— Gildistími vottorðsins er

ekki hafinn.

Vottorð skemmt

— Vottorðið er ónothæft. Hafðu

samband við útgefanda vottorðsins.

Breyta traustsstillingum

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr

skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og

að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Flettu að heimildarvottorði og veldu

Valkostir

>

Trauststillingar

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem

valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

:

— Vottorðið getur

sannreynt uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

:

— Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

— Vottorðið getur

sannreynt uppruna nýs Java™-forrits.

Veldu

Valkostir

>

Breyta trauststillingum

til að

breyta gildinu.