
Góð ráð við að koma á GPS-
tengingu
Ef tækið finnur ekki gervihnattamerki gættu þá að
eftirfarandi atriðum:
●
Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
●
Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
●
Gakktu úr skugga um að höndin sé ekki yfir GPS-
loftneti tækisins.
●
Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á sendistyrkinn.
●
Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er
víst að gervihnattamerki berist í gegnum þær.
74
St
aðsetni
ng
(GPS)

Athugaðu stöðu gervihnattamerkja
Til að athuga hvað tækið þitt fann mörg gervitungl og
hvort það tekur á móti gervihnattamerkjum skaltu
velja
Valmynd
>
Forrit
>
GPS-gögn
og
Valkostir
>
Staða gervitungla
.
Ef tækið hefur fundið
gervitungl birtist stika fyrir
hvert þeirra á
upplýsingaskjánum fyrir
gervitungl. Því lengri sem
stikan er, því sterkara er
merkið frá gervitunglinu.
Stikan skiptir litum þegar tækið hefur fengið nægar
upplýsingar frá gervihnattamerkinu til að geta reiknað
út hnit staðsetningar þinnar.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað hnit staðsetningar
þinnar. Þegar frumútreikningur hefur farið fram kann
það að vera mögulegt að reikna út hnit fyrir
staðsetninguna þína með þremur gervitunglum. Hins
vegar er útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri
gervitungl finnast.