Gagnageymslan forsniðin
Þegar gagnageymslan er forsniðin er öllum gögnum
eytt úr henni varanlega. Taka skal öryggisafrit af
128
Skrifstofa
gögnum sem á að geyma áður en gagnageymslan er
forsniðin. Hægt er að nota Nokia Ovi Suite eða Nokia
Nseries PC Suite til að afrita gögn yfir á samhæfa tölvu.
Stafræn réttindi (DRM) geta komið í veg fyrir að sum
afrituð gögn verði sett upp aftur. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um þau stafrænu réttindi sem gilda
um efnið.
Til að forsníða gagnageymsluna velurðu
Valkostir
>
Forsníða gagnageymslu
. Ekki skal forsníða
gagnageymsluna með tölvuhugbúnaði, það getur
dregið úr afköstum hennar.
Ekki er tryggt að öllum trúnaðarupplýsingum sem
vistaðar eru í gagnageymslu tækisins sé varanlega eytt
þó að hún sé forsniðin. Við venjulegt forsnið er
forsniðið rými aðeins merkt sem tiltækt pláss og
vistfangi til að finna skrárnar á ný er eytt. Það kann að
vera hægt að endurheimta forsniðin eða jafnvel
yfirskrifuð gögn með til þess gerðum tækjum og
hugbúnaði.