
Flýtiritun
1.
Kveikt eða slökkt er á flýtirituninni með því að ýta
tvisvar snöggt á #-takkann. Þá er kveikt eða slökkt
á flýtiritun í öllum ritlum tækisins.
gefur til
kynna að kveikt sé á flýtiritun.
2.
Ýttu á takkana 2-9 til að slá inn orðið sem þú vilt.
Ýttu einu sinni á takka fyrir hvern staf.
3.
Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu
staðfesta það með því að fletta til hægri eða ýta á
0 til að setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * til að
skoða samsvarandi orð í orðabókinni.
Ef greinarmerkið ? birtist aftan við orðið er orðið
sem þú vilt slá inn ekki að finna í orðabókinni. Orði
er bætt inn í orðabókina með því að velja
Stafa
, slá
inn orðið á venjulegan hátt (allt að 32 stafir) og velja
síðan
Í lagi
. Þá er orðinu bætt inn í orðabókina.
Þegar orðabókin er full er elsta viðbætta orðinu
skipt út fyrir það nýjasta.
Sláðu inn fyrri hluta samsetts orðs og staðfestu það
með því að fletta til hægri. Sláðu inn seinni hluta
orðsins. Ýttu á 0 til að klára samsetta orðið og bæta við
bili.