
Uppsetning á tölvupósti
Með póstuppsetningu Nokia geturðu sett upp
fyrirtækjapósthólfið þitt, eins og Microsoft Outlook,
Mail for Exchange eða Intellisync og tölvupósthólfið
þitt.
Þegar fyrirtækjapósturinn þinn er settur upp gætir þú
verið beðin(n) um heiti miðlarans sem tengist
tölvupóstfanginu þínu. Upplýsingatæknideild
fyrirtækis þíns veitir frekari upplýsingar.
99
Sk
ilaboð

1.
Uppsetningin er ræst með því að fara á
heimaskjáinn, fletta að póstuppsetningunni og ýta
á skruntakkann.
2.
Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð. Ef
uppsetningin getur ekki stillt tölvupóstinn
sjálfkrafa, þarftu að velja gerð tölvupósthólfsins og
færa inn skyldar pósthólfsstillingar.
Ef tækið inniheldur fleiri tölvupóstbiðlara geturðu
valið þá þegar þú ræsir póstuppsetninguna.