
Stillingar margmiðlunarskilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
.
Veldu úr eftirfarandi:
●
Stærð myndar
— Tilgreina skal stærð myndar í
margmiðlunarskilaboðum.
●
MMS-gerð
— Ef þú velur
Með viðvörunum
lætur
tækið þig vita ef þú reynir að senda skilaboð sem
ekki er víst að móttökutæki styðji. Ef þú velur
Takmörkuð
kemur tækið veg fyrir að þú sendir
óstudd skilaboð. Til að geta sett efni inn í skilaboð
án tilkynninga velurðu
Allt
.
103
Sk
ilaboð

●
Aðg.staður í notkun
— Veldu hvaða
aðgangsstaður er notaður sem ákjósanleg tenging.
●
Móttaka margmiðlunar
— Veldu hvernig þú vilt
taka á móti skilaboðum, ef sú þjónusta er í boði. Til
að taka sjálfkrafa á móti skilaboðum í
heimasímkerfinu skaltu velja
Sjálfv. í heimakerfi
.
Utan heimasímkerfisins mun tilkynning berast um
að það séu ósótt skilaboð í skilaboðamiðstöðinni. Ef
þú velur
Alltaf sjálfvirk
mun tækið sjálfkrafa koma
á virkri pakkagagnatengingu til að sækja skilaboðin
bæði innan og utan heimasímkerfisins. Veldu
Handvirkt val
til að sækja margmiðlunarskilaboð
alltaf handvirkt eða
Óvirk
til að loka fyrir móttöku
margmiðlunarskilaboða. Ekki er víst að sjálfvirk
móttaka sé í boði á öllum svæðum.
●
Leyfa nafnlaus skilaboð
— Hafna skilaboðum frá
nafnlausum sendendum.
●
Fá auglýsingar
— Taka á móti auglýsingum í formi
margmiðlunarskilaboða (sérþjónusta).
●
Fá tilkynningar
— Sýna stöðu sendra skilaboða í
notkunarskrá (sérþjónusta).
●
Neita sendingu tilk.
— Loka fyrir að tækið sendi
skilatilkynningar fyrir móttekin skilaboð.
●
Gildistími skilaboða
— Veldu hve lengi
skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda skilaboð frá
þér ef fyrsta sending þeirra mistekst (sérþjónusta).
Ef ekki er hægt að senda skilaboðin innan
tímafrestsins er skilaboðunum eytt úr
skilaboðamiðstöðinni.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir hendi til að hægt
sé að fá staðfestingu á því hvort send skilaboð hafa
verið móttekin eða lesin. Allt eftir símkerfinu og öðrum
aðstæðum hverju sinni getur verið að þessar
upplýsingar séu ekki alltaf áreiðanlegar.