
Skilaboðalesari
Með skilaboðalesaranum geturðu hlustað á texta-,
margmiðlunar- og hljóðskilaboð og tölvupóst.
Til að breyta stillingum skilaboðalesarans í
talgervilsforritinu skaltu velja
Valkostir
>
Talgervill
.
Hægt er að hlusta á ný skilaboð eða tölvupóst á
heimaskjánum með því að halda vinstri valtakkanum
inni þar til skilaboðalesarinn opnast.
Hægt er að hlusta á skilaboð úr innhólfsmöppunni eða
tölvupóst úr pósthólfinu með því að velja skilaboð og
Valkostir
>
Hlusta
. Ýttu á hætta-takkann til að stöðva
lesturinn.
Til að gera hlé á upptöku eða halda áfram að taka upp
ýtirðu á skruntakkann. Flettu til hægri til að opna
næstu skilaboð eða tölvupóst. Flettu til vinstri til að
endurtaka spilun á skilaboðum eða tölvupósti. Flettu
tvisvar til vinstri til að opna á skilaboðin á undan.
Hljóðstyrkurinn er stilltur með því að fletta upp eða
niður.
Til að sjá skilaboð eða tölvupóst sem texta án hljóðs
skaltu velja
Valkostir
>
Opna
.