
Ritun og sending skilaboða
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru
opnuð. Skilaboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað
eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað
tölvupóst verða réttar tengistillingar að vera fyrir
hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að
takmarka stærð MMS-
skilaboða. Ef myndin sem
bætt er inn fer yfir þessi mörk
gæti tækið minnkað hana
þannig að hægt sé að senda
hana með MMS.
Aðeins tæki með samhæfar
aðgerðir geta tekið á móti og
birt margmiðlunarskilaboð.
Útlit skilaboða getur verið
breytilegt eftir
móttökutækinu.
Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá
þjónustuveitunni. Ef þú reynir að senda tölvupóst sem
er yfir mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin
áfram í möppunni Úthólf og tækið reynir reglulega að
senda þau. Gagnatenging er nauðsynleg til að hægt sé
að senda tölvupóst og þjónustuveitan kann að
innheimta gjald fyrir endurteknar tilraunir til að senda
tölvupóst. Hægt er að eyða slíkum skilaboðum í
möppunni Úthólf eða færa þau yfir í möppuna Drög.
Það þarf netþjónustu til að geta sent skilaboð.
Senda texta- eða margmiðlunarskilaboð — Veldu
Ný skilaboð
.
Senda hljóð- eða póstskilaboð — Veldu
Valkostir
>
Búa til skilaboð
og viðeigandi valmöguleika.
97
Sk
ilaboð

Velja viðtakendur eða hópa af
tengiliðalistanum — Veldu
Til
.
Sláðu inn símanúmer eða netfang viðtakanda
handvirkt — Veldu Til efnisreitinn.
Bættu við semíkommu (;) sem skilur að
viðtakendur — Ýttu á *.
Sláðu inn titil tölvupósts- eða
margmiðlunarskilaboða — Staðfestu það í Efni
reitnum. Ef reiturinn Efni er ekki sýnilegur velurðu
Valkostir
>
Skilaboðahausar
til að breyta reitunum
sem eru sýnilegir.
Skrifaðu skilaboðin — Sláðu inn texta skilaboða.
Bættu hlut við skilaboð eða póst — Veldu og
viðeigandi tegund af efni. Tegund skilaboða kann að
breytast í margmiðlunarskilaboð eftir því hvert efnið
er.
Senda skilaboðin eða póstinn — Veldu
, eða ýttu
á hringitakkann.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin
fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða
fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald
í samræmi við það. Stafir sem nota kommur, önnur
tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira pláss
og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í
einum skilaboðum.