
Dagsetning, stillingar og
vefþjónustuboð
Tækið getur tekið við margs konar skilaboðum sem
innihalda gögn, svo sem nafnspjöld, hringitóna,
skjátákn símafyrirtækis, dagbókarfærslur og
tölvupóst. Þú getur einnig fengið stillingar frá
þjónustuveitunni þinni í stillingaboðum.
Til að vista gögnin í skilaboðunum skaltu velja
Valkostir
og viðkomandi valkost.
Vefþjónustuboð eru tilkynningar (t.d. nýjar
fréttafyrirsagnir) sem geta innihaldið texta eða tengil.
Nánari upplýsingar um framboð og áskrift fást hjá
þjónustuveitu.