
Myndskeið flutt úr tölvu
Færðu eigin myndskeið frá samhæfum tækjum yfir í
Kvikmyndabankann með samhæfri USB-snúru.
Kvikmyndabankinn mun einungis birta myndskeið sem
eru á sniði sem tækið styður.
1.
Til að sjá tækið í tölvu sem gagnageymslu, sem
hægt er að flytja allar gagnaskrár í, skaltu koma á
tengingu með USB-gagnasnúru.
2.
Veldu
Gagnaflutningur
sem gerð tengingar.
3.
Veldu myndskeiðin sem þú vilt afrita af tölvunni.
4.
Færðu myndskeiðin yfir í E:\My Videos í
gagnageymslu tækisins eða í F:\My Videos á
samhæfa minniskortinu, ef það er tiltækt.
Myndskeiðin sem búið er að færa birtast í möppunni
Myndskeiðin mín í Kvikmyndabankanum.
Myndefnisskrár í öðrum möppum tækisins sjást
ekki.