
Nokia Kvikmyndabanki
Með Kvikmyndabankanum (sérþjónusta) er hægt að
hlaða niður og straumspila myndskeið frá samhæfum
kvikmyndaveitum á netinu með því að nota
pakkagagnatengingu eða þráðlausa
staðarnetstengingu. Einnig er hægt að flytja
myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið og skoða þau í
Kvikmyndabankanum
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um
farsímakerfi þjónustuveitunnar að nota aðgangsstaði
fyrir pakkagögn til að hlaða niður hreyfimyndum.
Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá
þjónustuveitum.
Tækið kann að vera með fyrirfram skilgreinda
þjónustu.
Þjónustuveitur geta ýmist boðið upp á ókeypis efni
sem og efni sem gjald er tekið fyrir. Kannaðu verðið hjá
þjónustunni eða þjónustuveitunni.