Nokia N86 8MP - Taka myndir

background image

Taka myndir

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:

Nota skal báðar hendur til að halda myndavélinni

kyrri.

Myndgæðin minnka þegar aðdráttur er notaður.

Kveikt er á orkusparnaði myndavélarinnar ef ekki

hefur verið ýtt á neinn takka í tiltekinn tíma. Ýttu á

myndatökutakkann til að halda áfram að taka

myndir.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:

1.

Ef myndavélin er stillt á myndupptöku velurðu

myndatöku á tækjastikunni.

2.

Ýttu myndatökutakkanum niður til hálfs til að festa

fókusinn á myndefnið (aðeins í aðalmyndavél, ekki

í boði í landslags- eða íþróttastillingu). Á skjánum

birtist grænn fókusvísir. Hafi fókusinn ekki verið

festur birtist rauður fókusvísir. Slepptu

myndatökutakkanum og ýttu honum aftur niður til

hálfs. Einnig er hægt að taka mynd án þess að

fókusinn hafi verið festur.

3.

Ýttu á myndatökutakkann til

að taka mynd. Hreyfðu ekki

tækið fyrr en myndin hefur

verið vistuð og og birtist á

skjánum.

Notaðu aðdráttartakka tækisins

til að auka eða minnka aðdrátt

þegar mynd er tekin.
Kveikt er á fremri myndavélinni með því að velja

Valkostir

>

Nota myndavél 2

. Ýttu á skruntakkann

til að taka mynd. Stækkaðu eða minnkaðu myndina

með því að fletta upp eða niður.
Til að hafa kveikt á myndavélinni í bakgrunni og nota

önnur forrit ýtirðu á valmyndartakkann. Til að nota

myndavélina aftur skaltu halda myndatökutakkanum

niðri.