
Tækjastika
Tækjastikan veitir aðgang að flýtivísum fyrir
mismunandi atriði og stillingar áður og eftir að mynd
er tekin eða myndskeið er tekið upp. Hlutur er valinn á
tækjastikunni með því að fletta að hlutnum og ýta á
skruntakkann. Einnig er hægt að tilgreina hvenær
tækjastikan á að birtast.
Stillingarnar á tækjastikunni verða aftur sjálfgefnar
þegar myndavélinni hefur verið lokað.
Ef þú vilt að tækjastikan sjáist áður og eftir að mynd er
tekin eða myndskeið er tekið skaltu velja
Valkostir
>
Sýna tækjastiku
. Til að sjá tækjastikuna bara þegar
þú þarft þess skaltu velja
Valkostir
>
Fela
tækjastiku
. Ýttu á skruntakkann til að gera
tækjastikuna virka þegar hún er falin. Tækjastikan er
sýnileg í 5 sekúndur.
Það er sjálfgefið að allir flýtivísarnir eru ekki sýnilegir.
Til að bæta við eða fjarlægja flýtivísa af tækjastikunni
velurðu
Valkostir
>
Stilla tækjastiku
.
Hægt er að velja úr eftirfarandi atriðum á
tækjastikunni:
Skipta yfir í myndupptöku.
Skipta yfir í myndatöku.
Veldu umhverfið.
Kveikt og slökkt á ljósi fyrir myndskeið (aðeins í
myndupptöku).
Kveikt á ljósi fyrir myndskeið (aðeins í
myndupptöku).
Velja flassstillingu (aðeins fyrir myndatöku).
Til að kveikja á sjálfvirku myndatökunni (aðeins
fyrir kyrrmyndir).
Kveikja á myndaröð (aðeins myndir).
Veldu litatón.
Til að stilla ljósgjafann.
Stilla leiðréttingu við myndatöku (aðeins myndir).
Stilltu skerpu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Til að stilla birtuskil (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Kveikja á víðmyndatöku.
Táknin breytast og sýna hvaða stilling er virk.
31
Myndavél

Það getur tekið lengri tíma að vista myndir ef
stillingum fyrir stækkun, lýsingu eða liti er breytt.