
Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst UMTS-tengingar. Ekki er
hægt að nota samnýtingu hreyfimynda nema með
UMTS-símkerfi. Nánari upplýsingar um þjónustuna,
tiltæk UMTS-símkerfi og gjöld fyrir þessa þjónustu fást
hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota samnýtingu hreyfimynda þarftu
að gera eftirfarandi:
●
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga.
●
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-
tengingu og sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis.
Ef þú ferð út fyrir UMTS-þjónustusvæði meðan
samnýting fer fram, þá rofnar hún en símtalið heldur
áfram.
●
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú
býður einhverjum í samnýtingu og tæki
viðtakandans er ekki tengt við UMTS-símkerfi, eða
þá að samnýting eða P2P hefur ekki verið sett upp í
því, fær viðtakandinn ekki boðið. Þú færð villuboð
um að viðtakandinn geti ekki þegið boðið.
112
Hr
ingt úr tækinu