
Boð samþykkt
Þegar einhver sendir þér boð um samnýtingu
hreyfimynda birtist boðið ásamt nafni eða SIP-
vistfangi sendandans. Ef tækið þitt er ekki stillt á Án
hljóðs hringir það þegar þú færð boð.
Ef einhver sendir þér boð um samnýtingu og þú ert ekki
innan UMTS-þjónustusvæðis, færðu ekki að vita að þér
hafi verið send boð.
Þegar þú færð boð geturðu valið:
●
Já
— Samþykkja boðið og hefja samnýtingu.
●
Nei
— Hafna boðinu. Sendandinn fær skilaboð um
að þú hafir hafnað boðinu. Einnig er hægt að halda
inni hætta-takkanum til að hafna boðinu og ljúka
símtalinu.
Veldu
Valkostir
>
Hljóð af
til að slökkva á hljóði
tækisins.
Veldu
Valkostir
>
Venjulegt hljóð
til að spila
myndskeiðið með upprunalegum hljóðstyrk. Þetta
hefur ekki áhrif á hljóðspilun viðmælenda í símtali.
Veldu
Stöðva
til að ljúka samnýtingunni. Til að rjúfa
símtal skal ýta á hætta-takkann. Þegar símtali er slitið
er samnýting hreyfimynda einnig rofin.
114
Hr
ingt úr tækinu