
Samnýting hreyfimynda
Notaðu samnýtingu hreyfimynda (sérþjónusta) til að
senda rauntíma hreyfimynd eða myndskeið úr tækinu
í samhæft farsímatæki meðan á símtali stendur.
Kveikt er á hátalaranum þegar samnýting hreyfimynda
er gerð virk. Ef þú vilt ekki nota hátalarann í símtölum
á meðan hreyfimyndir eru samnýttar má einnig nota
samhæft höfuðtól.
Viðvörun: Stöðug áraun af háum hljóðstyrk
getur skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum
hljóðstyrk og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar
kveikt er á hátölurunum.