
Raddstýrð hringing
Tækið býr sjálfkrafa til raddmerki fyrir tengiliðina. Til
að hlusta á tilbúna raddmerkið skaltu velja tengilið og
Valkostir
>
Um raddmerki
. Flettu að tengilið og
veldu
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið
erfið í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því
ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1.
Til að hefja raddstýrða hringingu skaltu halda
hringitakkanum inni á heimaskjánum. Ef samhæft
höfuðtól með höfuðtólstakka er notað skaltu halda
takkanum inni til að hefja raddstýrða hringingu.
2.
Stutt hljóðmerki heyrist og textinn
Tala nú
birtist.
Berðu nafnið sem er vistað hjá tengiliðnum skýrt
fram.
3.
Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því
tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Til að hætta við raddstýrða hringingu
velurðu
Hætta
.
Ef nokkur númer eru vistuð hjá nafni er einnig hægt að
bera fram nafnið og gerð númersins, svo sem farsími
eða heimasími.