
Myndsímtali komið á
Í myndsímtali (sérþjónusta) geta bæði þú og
viðmælandi þinn séð rauntíma hreyfimynd af hvor
öðrum. Viðmælandi þinn sér þá hreyfimyndina sem
myndavélin þín tekur.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að
vera innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis.
Þjónustuveitan þín gefur upplýsingar um framboð og
áskrift að myndsímtölum.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í
einu. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan
farsíma eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á
myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal eða
gagnasímtal er virkt.
Tákn
Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir
viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða símkerfið sendir
hana ekki).
Þú hefur hafnað hreyfimyndsendingu úr tækinu
þínu. Til að senda kyrrmynd í staðinn skaltu velja
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
og
Sími
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
.
110
Hr
ingt úr tækinu

Jafnvel þótt þú hafnir hreyfimyndsendingu í
myndsímtali verður tekið gjald fyrir símtalið sem
myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá
þjónustuveitunni.
1.
Til að koma á myndsímtali skaltu slá inn númerið í
biðstöðu eða velja
Tengiliðir
og svo tengilið.
2.
Veldu
Valkostir
>
Hringja
>
Myndsímtal
.
Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í myndsímtali.
Það getur tekið nokkurn tíma að koma á
myndsímtali.
Bíð eftir hreyfimynd
birtist. Ef ekki
tekst að koma á tengingu (t.d. ef símkerfið styður
ekki myndsímtöl eða móttökutækið er ekki
samhæft), er spurt hvort þú viljir hringja venjulegt
símtal eða senda textaskilaboð eða
margmiðlunarboð í staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu ( ) og
þá heyrir þú aðeins í honum og sérð kannski
kyrrmynd eða gráan bakgrunn.
3.
Lagt er á viðmælanda með því að ýta á
hættatakkann.