
Þráðlaus hugbúnaðaruppfærsla
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
SW update
.
Með Uppfærslu forrita (sérþjónusta) geturðu kannað
hvort einhverjar uppfærslur fyrir hugbúnað tækisins
eru tiltækar og hlaðið þeim niður í tækið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér
stórar gagnasendingar (sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu
eða tengdu hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.
Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á
hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel ekki til að
hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að
uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið
endurræst. Taka skal öryggisafrit af gögnum áður en
uppfærsla er samþykkt.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða forrit tækisins
með Uppfærslu forrita er ekki víst að leiðbeiningarnar
um uppfærðu forritin í notendahandbókinni eða í
hjálpartextanum eigi lengur við.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
●
Ræsa uppfærslu
— Hlaða niður tiltækum
uppfærslum. Veldu uppfærslur af listanum til að
afmerkja tilteknar uppfærslur sem þú vilt ekki hlaða
niður.
18
Hj
álp

●
Update via PC
— Uppfæra tækið með tölvu. Þessi
valmöguleiki kemur í stað valkostsins Ræsa
uppfærslu þegar uppfærslur eru eingöngu fáanlegar
með Nokia Software Updater tölvuforritinu.
●
Skoða upplýsingar
— Skoða upplýsingar um
uppfærslu.
●
Skoða fyrri uppfærslur
— Skoða stöðu eldri
uppfærslna.
●
Stillingar
— Breyta stillingum, eins og sjálfvirka
aðgangsstaðnum sem er notaður til að hlaða niður
uppfærslum.
●
Afsal ábyrgðar
— Skoða Nokia leyfissamninginn.