
Lykilorð
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.
●
PIN-númer (Personal identification
number) — Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. PIN-númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir
yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er
slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað
og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.
●
UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-
kortinu. USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til
að nota í 3G-farsímum.
●
PIN2-númer — Númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir
sumum SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta
notað suma valkosti tækisins.
●
Læsingarkóði (einnig kallaður
öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að
tækið sé notað í leyfisleysi. Forstillta númerið er
12345. Hægt er að búa til og breyta númerinu og
láta tækið biðja um númerið. Haltu nýja númerinu
leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu. Ef þú
19
Hj
álp

gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að leita til
þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða
viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu
kann að verða eytt. Nánari upplýsingar færðu hjá
Nokia Care þjónustuveri eða söluaðilanum.
●
PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er
nauðsynlegt til að breyta PIN-númeri eða PIN2-
númeri sem hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki
með SIM-kortinu skaltu hafa samband við
þjónustuveituna sem lét þig fá SIM-kortið.
●
UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er
nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef
númerið fylgir ekki með USIM-kortinu skaltu hafa
samband við þjónustuveituna sem lét þig fá USIM-
kortið.
●
IMEI-númer (International Mobile Equipment
Identity number) — Þetta númer (15 eða 17
tölustafir) er notað til að bera kennsl á gild tæki á
GSM-símkerfinu. Hægt er að útiloka tæki, t.d. þau
sem hefur verið stolið, af kerfinu. IMEI-númerið fyrir
tækið er að finna undir rafhlöðunni.