Nokia N86 8MP - Uppsetning forrita og hugbúnaðar 

background image

Uppsetning forrita og hugbúnaðar

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr

samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða

fá þær sendar sem margmiðlunarboð, sem

tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir, svo

sem Bluetooth. Hægt er að nota Nokia Application

Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í tækinu.
Táknin í Stjórnanda forrita sýna eftirfarandi:

.sis- eða .sisx-forrit

Java™-forrit

forrit er ekki fyllilega uppsett

forrit sett upp í gagnageymslunni

forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit

og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit

með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð

með Java Verified™.

133

Forrit

background image

Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og

seljanda eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða upplýsingar

.

Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins

skaltu velja

Upplýsingar:

>

Vottorð:

>

Skoða

upplýsingar

.

Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða

endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu

aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað

hvort upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi,

eða öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum

sem var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega

forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja

það upp aftur úr upphaflegu uppsetningarskránni

eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-

forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að

hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er

tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja

aðgangsstað. Þegar .JAR-skráin er sótt getur

notandinn þurft að færa inn notandanafn og lykilorð

til að komast á miðlarann. Þú getur fengið

notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða

framleiðanda forritsins.

Til að setja upp forrit eða hugbúnað gerir þú

eftirfarandi:

1.

Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Stj. forrita

. Að öðrum

kosti skaltu leita að uppsetningarskrám með

Skráarstjóra eða velja

Skilaboð

>

Innhólf

og opna

skilaboð sem innihalda uppsetningarskrá.

2.

Í Stjórnun forrita velurðu

Valkostir

>

Setja upp

. Í

öðrum forritum velurðu uppsetningarskrána til að

hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið

upplýsingar um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú

setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða

vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda

áfram að setja upp forritið ef þú ert viss um uppruna

þess og innihald.

Veldu forrit til að setja það upp. Ef forritið er ekki með

sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í

möppunni Uppsetn. á aðalvalmyndinni.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir

upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt

vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins

vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og

virkni tækisins, eða valdið því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni

tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á

samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni

134

Forrit

background image

og valdið því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til

að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi Suite til að taka

öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á

samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota skráastjórnun

til að eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins.

Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í

skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.