
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800, 1900 og UMTS 900,
1900, 2100 símkerfi. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um símkerfi.
8
Öry
ggi

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt.
Höfundarréttarvörn getur hindrað afritun, breytingu eða
flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.
Tækið styður nokkrar mismunandi gerðir tenginga. Líkt og
gildir um tölvur hafa vírusar og annað skaðlegt efni áhrif
á tækið. Fara skal með gát við meðhöndlun skilaboða,
tengibeiðna, við vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal
setja upp og nota þjónustu og hugbúnað frá áreiðanlegum
aðilum sem bjóða upp á nægjanlega vörn gegn skaðlegum
hugbúnaði líkt og Symbian Signed hugbúnað eða
hugbúnað sem hefur staðist Java Verified™ prófun. Þú
ættir að íhuga að setja vírusvarnarhugbúnað og annan
öryggishugbúnað upp í tækinu og tölvum sem tengjast við
það.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt
vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni
tækisins, eða valdið því að það virki ekki.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður
þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju aðila
í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia
hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt
heimsækja slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal
kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur
valdið truflun eða hættu.
Skrifstofuforritið styður helstu valkosti Microsoft Word,
PowerPoint og Excel (Microsoft Office 2000, XP og 2003).
Ekki er hægt að skoða eða breyta öllum skráargerðum.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má
tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir kunna að líta öðruvísi út í þessum bæklingi en á
skjá tækisins.