Nokia N86 8MP - Öryggi

background image

Öryggi

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt

getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal

alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun

þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún

kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð

skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu

við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í

akstri.

TRUFLUN

Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir

truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á

tækinu um borð í flugvélum, nærri

lækningatækjum, eldsneytisstöðvum,

efnaverksmiðjum eða svæðum þar sem verið er

að sprengja.

GLERHLUTAR

Framhlið tækisins er gerð úr gleri. Þetta gler

getur brotnað ef tækið fellur niður á harðan flöt

eða verður fyrir miklu höggi. Ef glerið brotnar

má ekki koma við glerhluta tækisins eða reyna

að fjarlægja brotna glerið af tækinu. Taka skal

tækið úr notkun þar til fagmaður hefur skipt um

glerið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða

gera við þessa vöru.

AUKABÚNAÐUR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykktan aukabúnað og

rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

Til athugunar: Yfirborð platna þessa tæki felur

ekki í sér nikkel. Yfirborð þessa tækis felur í sér ryðfrítt stál.